nú skal tekið á því

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi!

18.07.2007 16:16:29 / Rusla

heilsuatak.bloggar.is

Endilega kíkjið á nýja bloggið og hjálpið mér að koma mér af stað aftur....

 www.heilsuatak.bloggar.is

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 07:11:16 / Rusla

Nýjir Tenglar

Ég var að taka til í tenglunum.
Endilega látið mig vita þær sem vilja vera inni á hjá mér


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 06:55:24 / Rusla

arrggg

aarrrgg
Dagurinn í gær var ekki nógu góður.
Var góð í matarræðinu fram eftir degi en svo fékk ég mér hamborgara og franskar og oj hvað mér leið illa á eftir og í alla nótt...... þetta er bara viðbjóður
Fór ekkert í ræktina í gær... var á skralli með litlu allan daginn og orkan var bara búin seini partinn og svo fór ég í heimsókn um kvöldið.....

Stefnan er að eiga góðan dag í dag... fara í ræktina í hádeginu og svo borða hollt....

En vonandi fer ég að smella í gírinn...

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 22:08:03 / Rusla

Vigtunardagur

þá er vika 3 farin af stað:) og vigtun í dag og niður um 500gr:)
Verð ekkert hjá þjálfaranum þessa vikuna , ég ætlaði að fara í body pump í hádeginu en tíminn féll niður og ég fór því í rpm(spinning) 

Matard.
M: herbó
H: herbó+skyr
Kaffi: fór á te og kaffi og fékk mér kaffi og hollustuköku og svo þegar ég kom heim fékk ég mér jarðaber og bláber.
Kvöldm: blanda úr salatbarnum í Hagkaup, meðal annars túnfiskur,egg, smá pasta, melóna,paprika, gúrka.
Kvölk: smá sykurlaus búðingur og jarðaber og bláber.

Verð að fara hætta að borða svona á kvöldin.
Svo er body pump á morgun.

Í gær borðaði ég frekar lítið, ég veit:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 21:24:37 / Rusla

Mætt aftur

Ákvað að halda bara hér áfram. Fílaði bloggar.is ekki og kunni frekar illa á þá síðu.

Átakið gengur ágætlega. Ég fór í body pump á sunnudaginn. Ég verð ekkert hjá þjálfaranum þessa vikuna svo ég verð að fara sjálf! En ég fór ekkert í dag en ætla í body pump á morgun í hádeginu, svo ætla ég í rpm(spinnig) á miðvikudaginn....

 

 



Matarræði gengur lala, er alltaf svo svöng á kvöldin... og langar alltaf svo í nammi en ég hef ekki borðað nammi í 2 vikurJ  

 

 



Ég ætla að hafa matardagbók og hreyfingardagbók, próf hvort það gangi betur.

 

 



Matardagbókin í dag

 

 



Morgunm: herbó

Hádegismatur: Skyr og herbó og 3 hrökkbrauðsneiðar með osti.

Kvöldmatur: lagsagne og hvitlauksbrauð


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 20:57:13 / Rusla

alltaf einhver sem kíkir

ufff já er komið nýtt ár :) Gleðilegt ár og takk fyrir allan stuðning á síðast ári:) Árið 2005 leið ótrúlega hratt og er ég mjög sátt.... alla vega hefur lítið farið fyrir hreyfingu hjá mér og öðru sem því fylgir...... en ég er ekki alveg einsömul og mun eiga barn í endan júlí:) orkan og heilsan er ekki alveg að gera sig en ég mun setja fréttir hér öðru hvoru:) Frábært hvað þið eru að standa ykkur vel. gangi ykkur rosalega vel knús

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2005 10:10:07 / Rusla

uffff

æi þetta er búin að vera erfið vika. þyngdist um 700gr þessa vikuna og það er í fyrsta skipti síðan ég byrjaði í jan en ég var líka að drekka á laugardaginn og vona að það sé bara það, og svo er bara allt búin að vera ómögulegt, skólin gekk ekki eins vel og ég vildi og svo hef ég bara verið andlaus og varla nennt í ræktina. en ég er að reyna að rífa mig upp á rassg... þar eiginlega mikið pepp.... er svo smeik um að gefast upp og fá þessi kg aftur á mig :( segði bara arrrgggg í bili

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2005 22:01:47 / Rusla

10 kg farin:)

Morgunmatur: Myóplex
morgunkaffi: drykkjarskyr
hádegismatur: pulsa í brauði og 2 léttkex með camerbert
Kaffi: drykkjarskyr
kaffi:  4 snittur og coke light( fór á fund)
Kvöldmatur: grilluð ýsa, grænmeti og kartafla pepsí max
kaffi: jarðarber og hnetur

Hreyfing: tími hjá þjálfara

og vigtin sýndi 82.8:)  hlakkta til að sjá 79.9

» 12 hafa sagt sína skoðun

18.05.2005 20:15:33 / Rusla

Dagur 122 miðvikudagur

Skellti mér í sund og synti 1.5 km  og svo í pottinn

Morgunmatur: Drykkjarskyr
Morgunkaffi: jarðarber
Hádegismatur: kjúklingasalat og pepsí max
Kaffi: banani
Kvöldmatur: kjúklingalæri og 2 flatkökur með túnfisksalati (sýrður rjómi og létt majónes, egg og túnfiskur) og pepsí max

alveg sæmilegur dagur, skellti mér á vigtina í lauginni og hún var nú alveg ágætt:)
sjáum hvað hún segir á morgun í ræktinni

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2005 22:27:54 / Rusla

nú skal tekið á því

Er mætt og tilbúin á fullt spann.

Var ekkert rosalega dugleg að hreyfa mig um helgina en fór nú samt aðeins í göngu.
Byrjaði í nýju sumarvinnunni í morgun og líst bara vel á þetta og svo var síðasti tímin í ungbarnasundinu oooo mig langar að halda áfram með þessar dúllur:)
En á morgun ætla ég að byrja að setja matardagbókina inn.

Ég er mikið að spá í að bætt sundi inní hreyfinguna og fara þá s.s í ræktina á morgnana fyrir vinnu og svo í sund eftir vinnu svo 2svar í viku.....  fá smá lit á kroppinn þar sem maður fer ekki til sólarstranda þetta sumarið, kannski bara í haust8)

Er alveg að vera komin í 10kg en ég vona að það takist alveg á fimmtudaginn og ég bíst ekki við að ná 80kg fyrir 1júni svo ég ætla að breyta því markmiði og setja það 1júlí en er samt búin að ná einu markmiðinu um að ná 10kg fyrir 1júní. Næsta markmið er að vera búin að missa önnur 10kg fyrir 1okt.
Ætla að halda áfram hjá þjálfaranum í sumar, sjá svo til í haust :)

Gangi ykkur vel stelpur

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2005 10:21:01 / Rusla

Vigtunardagur

komst niður um 800gr síðan á fimmtudaginn. Það er brjálað að gera í verkefnum og ritgerðum og prófum svo ég verð nú ekki mikið hérna.
Er samt á fullu og fór út að hlaupa í gær og gat hlaupið alveg í 30mín,

gangi ykkur vel og ég kíki á ykkur reglulega þótt ég kommenti ekki mikið:) á það inna þanngað til eftir próf :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.04.2005 17:54:19 / Rusla

Dagur 94

Vigtin stóð í stað en ég er á túr og svo held að ég sé að fá sukkið í hausinn sem ég gerði í nokkrar daga hér fyrir 2vikum. já þetta getur komið svona seint, eða það segir þjálfarinn.
en ég skal bara taka það vel i næstu viku,

annars hef ég verið mjög dugleg, það er kannski eina að ég hef ekki verið að borða nógu mikið, listalaus og svo er ég búin að vera með viðbjóðslegan hóst og hálsbólgu í nokkra daga en hef alveg farið í ræktin en ég ætla að reyna að hlaupa þetta úr mér, hef engan tíma til að vera veik.
Nú fer próf og ritgerðartörn að byrja og svo bara sumarið:)
Ég er nú ekki alveg komin í 10kg en ég ætla mér að vera komin í þau eftir 2vikur! þá er ég á undan áætlun:)

Gleðilegt sumar


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 16:48:53 / Rusla

Helgin. Dagur 90 og 91

Helgin var alveg stór fín. Fór í ræktina á laugardaginn og í brennslu og tók um 6 km á brettinu og auðvita enn að hlaupa í halla!

Fór svo saumó á sunnudaginn og fékk mér brauðrétti en engar kökur!

Vigtun á morgun.......

Nenni ekki að setja inn matseðilinn.:$

Fór ekkert í ræktina í gær, var að vinna, læra og þurfti ég að bruna í saumó í annað bæjarfélag:)

gangi ykkur vel og takk fyrir kommentin.
Hitti fullt af fólki um helgina sem hefur ekki séð mig lengi og hrósuðu mér óspart:) oo það er svo gaman, finn líka þvílíka mun á mér en samt er ég ekki að trúa að ég sé að verða búin að missa 10kg!!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.04.2005 23:53:15 / Rusla

Dagur 89

Morgunmatur: Myóplex
Hádegismatur: drykkjarskyr og harðfiskur, coke Light
Kaffi: 3 hrökkbrauð með osti
Kvöldmatur: kjúklingabringur og brúnhrísgrjón frá Nings
Kvöldkaffi: popp(heimagert) og smá sykurlaus búðingur og pepsí max

Ræktin: 10 mín stigavelin 1.70km, brettið 40mín: 4.40 allskonar labb og hlaup, setti aftur á 10 og hlaup í 3mín og eins á halla 6.

Góða helgi

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.04.2005 10:31:50 / Rusla

Dagur 88

Ég veit að ég borðaði ekki alveg nógu mikið í gær. Hefði átt að fá mér ávöxt og svoleiðis, en þegar maður er í skólanum og brjálað að gera þá gleymir maður að borða og svo var ég ekki með penning:)

Fimmtudagur
Morgunmatur: myóplex
Hádegismatur: afgangur af kjúklingarréttnum
Kaffi: harðfiskur og vatn
Kvöldmatur: epli, drykkjarskyr,pepsí max og svo próteinbar. var í skólanum að gera verkefni !
Kvöldkaffi: skyrbúst.
svona sæmilegur dagur
Ræktin: æfing hjá þjálfara, p.s tók aftur 2mín í 10 halla:)

Takk fyrir commentin.

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7